10.2.2010 | 06:19
Föstudagar í fleirtölu
Langafasta kristinna Eþíópíumanna er hafin!
Fram að föstudeginum langa verða eingöngu grænmetisréttir á veitingastöðum í Eþíópíu.
Ég var grænmetisæta áður en ég kom til kjötelskandi Eþíópíu en gafst upp í stað þess að svelta.
Guði sé lof fyrir píslargöngu Palestínumannsins Sússa frá Nasaret og afleiðingum hennar.
Athugasemdir
það er bölvað vesen að vera grænmetisæta hér í kína. ég pældi í því hvort ég ætti að byrja borða kjúkling til að auðvelda mér lífið, en hætti við um leið og ég sá heilar reittar hænur í frystikistunni í matvörubúðinni! hausinn og fæturnar og allt! oj.
sæunn (IP-tala skráð) 10.2.2010 kl. 11:08
Þú hefður átt að hafa Herbalife með þér
Ásdís Sigurðardóttir, 10.2.2010 kl. 14:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.