17.1.2008 | 16:00
Gífurleg fjölgun Íslendinga á Indlandi
Sara er lent!
Á meðan ég beið eftir að ferðafélaginn kæmi frá flugvellinum rakst ég tvo aðra Selfyssinga - fyrir algjöra tilviljun. Auður Örlygsdóttir og Berglind Helgadóttir eru víst einnig nýkomnar og verða á flakki fram á sumar. Já, ég varð hissa að sjá þær.
Svo vinna víst tveir Íslendingar í sendiráðinu okkar í Delhi. Gaman væri að vita hvort það leyndust fleiri samlandar í nágrenni við mig.
Athugasemdir
Ég er á Íslandi, í snjó upp að mitti... það er svona sirka upp að hné á þér.
GK, 17.1.2008 kl. 20:36
Þú ert ekki fyrr kominn út en þú byrjar að leita uppi Íslendinga! Greinilega kominn með heimþrá ;)
Máni (IP-tala skráð) 18.1.2008 kl. 19:45
Gaman að fylgjast með ferðalaginu þinu Egill, væri alveg til í að vera á Indlandi núna... Ég var á Indlandi um jólin og við áttum meiriháttar tíma þar... Skemmtu þér vel og mundu að þrífa á þér hendurnar áður en þú borðar:)
Kv. Aron Kennari
Aron Hinriksson (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 15:39
Þú bara veður í kvenfólki! kv.
Helga R. Einarsdóttir, 19.1.2008 kl. 18:56
eg turfti nu ekki einu sinni ad leita ta uppi mani, teir bara birtust.
eg takka heilraedid aron.
Egill Bjarnason, 21.1.2008 kl. 13:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.