28.2.2008 | 08:22
Drykkjuvesen
Ef múslimi er gómaður fullur á almannafæri á hann yfir höfði sér nokkra mánuði í steininum, samkvæmt lögum í Pakistan. Það ku samt sjaldan enda þannig. Flestir múta bara löggunni.
Það er eins með þetta og öll önnur forsjárhyggjubönn; þeir sem virkilega vilja drekka gera það. Kaupa ýmist vín á svörtu eða heimabrugg.
Til þess að ferðamaður geti keypt áfengi löglega verður hann að vera með þar til gert leyfi frá yfirvöldum.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.