21.4.2008 | 10:57
Draumalandið Íran
Hótelstarfsmaðurinn í Mashad í Íran varð hálf móðgaður, þegar ég spurði hvort það kæmi heitt vatn úr sturtunum. Halló, þetta er hótel!
Í Afganistan var ég vanur að spyrja hvort það væru sturtur. Stundum var ekki einu sinni rennandi vatn.
Verslanir í Mashad eru opnar langt fram á nætur. Handan hótelsins eru seldir FERSKIR ávextir. Til þess að nálgast þá þarf að nota svokallaða gangbraut við svonefnd umferðarljós. Engin hætta er á að stíga ofan í opin holræsi meðan maður gengur um snyrtilegar aðalgöturnar. Á meðan eru heldur engar búrkuklæddar konur sem grípa í handlegginn á manni og grátbiðja um bukshiss!
Ég er í kúltúrsjokki.
Athugasemdir
Takk fyrir að vilja vera bloggvinur minn. Ég hef oft dottið hérna inn ig finnst aman að lesa færslurnar þínar.
kveðja frá Akureyri
Anna Guðný , 21.4.2008 kl. 14:00
... en af hverju eru engir hraðbankar í þessu draumalandi?
Elín (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 22:11
Umferðarljós eru náttúrulega afskaplega lúðaleg en sturtur eru vissulega jákvæðar. En bestu kveðjur austur eftir, kannski kemst ég þangað í þessari ferð áður en visakortið segir mér að fara heim ...
Hannibal Garcia Lorca, 22.4.2008 kl. 00:06
Það er mikið af hraðbönkum í íran og allt of mikið af bönkum.
Hinsvegar er ekki hægt að nota visa eða mastercard held ég.
Hefur víst eitthvað með viðskiptabann að gera ?
Gúlli (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 07:14
Ég bið Behnaz, vinkonu mína í Tehran, um að sýna þér borgina, ef þú hefur áhuga. Þú getur alltaf sent henni línu á bs_secret@yahoo.com Segir henni bara að þú sért vinur Steina Briem. Og þeir sem eru vinir hans verða nú ekki sviknir af því.
Ekki vera feiminn við írönsku stelpurnar, Egill minn. Alltaf að koma sér í mjúkinn við heimamenn, hvort sem þeir eru í Framsóknarflokknum, eða ekki.
Þorsteinn Briem, 22.4.2008 kl. 16:09
hei, ekki dissa kabúl. það eru sko líka ein umferðarljós hér. Hátískuljós meira að segja, með sekúnduteljurum sem sýna hvað rauða á langt eftir, sett upp í síðustu viku. Þegar lengra líður frá, þá fara menn m.a.s. kannski að fara eftir þeim líka.
herdis (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 08:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.