. - Hausmynd

.

Síðasti frjálsi staður jarðar

Vopnasali

Milli landamæra Pakistan og Afganistan eru löglaus ættbálkahéröð á stærð við suðlandsundirlendi Íslands. Smygl, fíkniefnasala, vopnaframleiðsla og peningafals eru arðbærustu atvinnuvegirnir á þessum „síðasta frjálsa stað jarðar".  Pennabyssa

Héröðin tilheyra Pakistan en eru utan pakistanskra laga. Íbúar eru liðlega þrjár milljónir talsins og flestir af kynþætti pastúna. Óhætt er að segja að allt logi í átökum. Mismunandi ættbálkar takast á um völd. Á meðan reyna bandarískir hermenn og Nato-liðar að svæla út meðlimi al-Qaeda og talibana frá landamærum Afganistan. Á hinum endanum bifast Pakistanskir hermenn svo við að koma reglu á svæðið.

Byssubærinn Darra

Útum bílglugga virðist Darra vera eins og hvert annað smáþorp á þessum slóðum. En það varir skammt. Ég er ekki fyrr stigin undir beran himin þegar skothljóð heyrast í fjarska. Sjálfsagt einhver að prófa einar af  700 byssunum, framleiddum í þorpinu - daglega. Í Darra er atvinnumiðlun einföld; þú annað hvort framleiðir vopn, selur eða notar þau.

„Þessi er á fimmtíu dollara," segir kaupmaður í Darra og veifar að mér skammbyssu, „en betri gerðin kostar fjögur hundruð dollara. Haglabyssurnar eru svo þarna ... "Peshawar

Hver einasta verslun í Darra selur skotvopn. Samt ekki endilega allar vopnabúðir að upplagi. Sumar hafa nefnilega líka gott úrval af verkfærum, mat og örðum kaupfélagsvörum í búðarglugganum. Næstum jafn absúrd sjón og maður á eftirlaunaaldri á vappi með kalashnikov-riffil.

„Hvað villtu, félagi? Ég get látið sérsmíða hvernig byssu sem er," heldur vopnasalinn áfram. Í sömu andrá stormar sveit lögreglumanna inn í verslunina.

„Þið verðið að fara. Þessi staður er ekki fyrir útlendinga," segir túlkur lögreglunnar og lýtur í átt til mín og breska ferðafélagans. Túlkurinn lærði á sínum tíma ensku til að lóðsa ferðamenn um staðinn. „Það var áður en talibanarnir rændu völdum. Núorðið er staðurinn hættulegur," segir hann.  

Túlkurinn rifjar upp fyrir okkur að fyrir fjórum dögum hafi fjörtíu gamlir, virtir, menn dáið í sjálfsmorðssprengjuárás. Fórnarlömbin voru saman komin á útifundi til að ræða öryggisástandið í Darra.

Lögreglumennirnir fallast á að gefa okkur te áður en við erum sendir aftur til baka. Við buðum þeim pening, hálfs mánaða laun lögreglumanns í Pakistan, til að fylgja okkur um staðin. En allt kom fyrir ekki. Með öðrum orðum: Túlkurinn sagði satt.

 

Einnota skotvopn

Í staðinn fæ ég heimamann til að sýna mér ólöglega vopnaverksmiðju í útjaðri Peshawar í Pakistan. Þar starfa um tuttugu manns við að smíða skammbyssur. Mikil nákvæmnisvinna en hver starfsmaður afkastar um fimm byssum á dag. Þær eru síðan aðallega seldar milli- og hástéttarfólki í Pakistan. Byssur eru stöðutákn meðal þeirra. Skammbyssur

„Ef þú villt taka með þér byssu heim get ég selt þeir eina í þremur pörtum. Þú kemst í gegnum flugstöðvareftirlitið með því að setja þá sitt í hvora töskuna. Púslar gripnum svo saman heima. Einfalt mál," segir forstjórinn í verksmiðjunni. Sýnir mér svo stoltur byssu sem lýtur út eins og penni.

Athygli vekur að byssurnar eru ranglega merktar „made in China".Byssurnar frá Pakistan eru nefnilega frægar fyrir að vera einnota drasl.

 

DópbasarinnDarra

Vopnaverksmiðjan er steinsnar frá frægum stórmarkað sölumanna dauðans. Basarinn er í munni Kyberskarðsins sem liggur milli tollgæslustöðva Pakistan og Afganistan.

Ópíum, heróín, hass og sprútt frá Afganistan á greiða leið inn á löglausu svæðin. Þó að yfirvöld í Pakistan séu áhrifalítil í ættbálkahéröðunum stjórna þau alfarið umferð inn á svæðið. Löggæslumennirnir eru hins vegar upp til hópa spilltir. Með því að reiða fram mútur geta talibanar, smyglarar og ferðamenn hæglega komist leiða sinna.

Verslunargatan er niðurnídd. Enda þurfa kaupmennirnir ekki að hafa staðinn fínan til að laða að viðskiptavini. Inn í einni dæmigerðri verslun er kaupmaðurinn að vigta heróín. Á gólfinu sitja fastakúnnar, innan um sprautunálar og álpappír, í „mjög annarlegu ástandi", eins og lögreglan á Íslandi myndi orða það. Myndatökur eru stranglega bannaðar.

Sumar verslanir selja líka falsaða peninga, hundrað dollara seðla og pakistanskar rúpíur. „Kauptu nokkur hundruð dollara á slikk og skiptu þeim svo í Pakistan. Gjaldkerar treysta ferðamönnum mun betur en heimamönum," útskýrir leiðsögumaðurinn minn.

 

ÆttbálkaerjurHéraðshöfðinginn

Dópsalarnir verða allir að borga tíund til héraðshöfðingjans, Zaid. „Ef einhver vandamál koma upp, leita menn lausna hjá mér," segir höfðinginn og sýnir mér dagsgamla forsíðu pakistanskt dagblaðs. Bendir á mynd af brennandi jeppa, réttir út hendurnar og segir hróðugur: „Við notuðum svona stóra sprengjuvörpu. Drápum þrjá af þeirra mönnum. Engan okkar sakaði." Hinir myrtu tilheyrðu öðrum ættbálki og höfðu, að sögn Zaid, rænt konu af hans svæði. 

Aðspurður hvort pakistanska lögreglan hafi einhvern tíman gert rassíu sendur ekki á svarinu: „Nei! Löggan veit hverjar afleiðingar yrðu," segir hann, montinn af veldi sínu.

 

Verja eftirlýstasta mann heims

Ef Osama Bin Laden er enn lífi er líklegast að hann sé í felum í Waziristan héraðnu. Íbúar þess eru svarnir andstæðingar yfirvalda og Vesturlanda. Á tímum Sovétstríðsins í Afganistan urðu ættbálkahéröðin að griðastað skæruliða mujaheddin, sveitar guðs. Síðan þá hefur það verið gróðrarstía trúarofstækismanna. 

Ein af fáum ættbálkareglum Pastúna á svæðinu er að hýsa alla aðkomumenn sem leita skjóls. Þeim ber meira að segja að verja gestinn með vopnum ef þess þarf.

25 milljón dollara fundarlaun freista ekki þá sem lifa utan peningahagkerfis. Heiður, heiður og aftur heiður er það eina sem máli skiptir í samfélaginu. Það veit Bin Laden.

(Birtist í 24 stundum vorið 2008)

Morðvopn Þessi penni er byssa með einu skoti, nógu öflug til að drepa mann af stuttu færi, segir framleiðandinn.

Hálfkláraðar skammbyssur Talið er að á annað þúsund skotvopna séu framleidd daglega inn á ættbálkasvæðunum í Pakistan.

Í vopnaverksmiðju Þessi vinnumaður púslar saman fimm skammbyssum á dag.

Sölumaður í Darra „ Ég get látið sérsmíða hvernig byssu sem er."

Héraðshöfðinginn Hinn vægðarlausi Zaid innheimtir skatt af stórfelldum dópsölum á hans yfirráðasvæði. Hér liggur hann makindalega upp í rúmi með hjartalaga púðum og horfir á 46 tommu sjónvarpið sitt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Mér sýnist að þetta sé frekar svæði sem eftir er að frelsa úr myrkviði miðalda, fávisku, fordóma og mannfyrirlitningar. Kannski hef ég rangt fyrir mér. Þú ættir ef til vill að setjast þarna að og hjálpa til, kvænast huldukonu, eða tremur og eignast 15 börn.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.8.2008 kl. 17:44

2 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Áhugavert

Kjartan Pétur Sigurðsson, 8.8.2008 kl. 09:51

3 identicon

Vil þakka þér frábært blogg. Er á leið til Palestínu í hjálparstarf svo að bloggið þitt hefur verið ómetanleg lesning við að hjálpa mér að átta mig á hverju ég á von. 

 Takk svo mikið :)

Borghildur Hauksdóttir (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 15:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband