. - Hausmynd

.

Í kórantíma með talibönum

madrassa_pakistan1

Svonefndir madrassa skólar við landamæri Pakistan og Afganistan eru alræmdir fyrir að ala af sér árásarmenn talibana og al-Qaeda. Er það sanngjörn einkunn? Blaðamaður 24 stunda sat kennslustund um starfsemi eins trúarskólans, Pakistanmegin við landamærin.

Orðið madrassa  þýðir einfaldlega skóli og nemendur þeirra eru  kallaðir talib eða taliban. Þegar þessi hugtök eru nefnd í fjölmiðlum á Vesturlöndum vísa þau til iðulega róttækra jihad-skóla og uppreisnarmanna í Afganistan.

Salim Rahmani er enskumælandi kennari við madrassa skóla í grennd við fjölmennustu flóttamannabúðir Pakistan. Hann segir að verið sé reyna eyðileggja orðspor þessara fornu trúarskóla. „Við höfum ekkert á móti Bandaríkjunum eða Vesturlöndum. Því síður styðjum við ofbeldi enda er það ekki í takt við hugmyndafræði madrassa," útskýrir Ramhani en hann virðist forðast að nota orðið talibani yfir nemendur sína.madrassa_pakistan3


Haldið uppi af Sádum

Í umræddum skóla eru hátt í hundrað nemendur á aldrinum tíu til átján ára. Stúlkur eru í miklum minnihluta og haldið aðskildum. Flestir eru Afganskir flóttamenn sem eiga ekki kost á annarri menntun. Samkvæmt hugmyndafræði madrassa á allt að vera ókeypis; menntun, matur og húsaskjól. Að sögn Rahmani er skólinn rekin á frjálsum framlögum, sérstaklega frá örlátum Sádum.


Læra kóraninn utanbókar

Helsti munurinn á madrassa og ríkisreknum skóla er sá að einungis er stuðst við trúleg rit.  Megin áhersla er lögð á að nemendur læri vers kóransins utanbókar og geti flutt þau með framburði og takti Múhameðs spámanns. „Eftir eitt og hálft til tvö ár getur nemandi flutt öll 6200 vers kóransins frá hjartanu," segir Ramhani. „Við kennum líka önnur fög á borð við skrift, tölvufræði, stærðfræði og trúarleg vísindi."

Trúarleg vísindi. Hljómar undarlega. „Sjáðu til," segir kennarinn, „ í kóraninum er að finna svör við öllu mögulegu. Til dæmis ef nemandi er með stanslausan höfuðverk. Þá getur hann leitað til múllans, skólastjórans, og saman vinna þeir buga á vandanum með hjálp Allah og kóransins."

Athygli vekur að nemendur læra kóraninn utanbókar á frummálinu, arabísku, en ekki móðurmálinu, pastú, sem er gjörólíkt tungumál. Rahmani segir nemendur samt sem áður skilja boðskapinn jafn óðum.

Þegar talib útskrifast  fer hann á vinnumarkaðinn, fær hlutverk í mosku eða gerist íslamskur kennari líkt og Rahmani.


Dæmigerður skóladagur

Skóladagurinn byrjar klukkan fimm að morgni með bænastund í mosku skólans. Síðan er tími fyrir lexíur úr kóraninum fram að hádegi. Þá breytast kennslustofurnar í fuglabjarg. Yngstu nemendurnir fara upphátt með mismunandi vers úr hinni heilögu bók og rugga sér á meðan fram og aftur. Að sögn kennaranna er þetta besta „námstæknin".

Eftir hádegi taka við almennari fög þangað til skóladeginum lýkur með krikketleik.


Talibanaverksmiðjurmadrassa_pakistan2

Þó að flestir madrassa skólar í Pakistan séu í líkingu við þennan er staðreynd að sumir eru notaðir sem skæruliðaverksmiðjur með áherslu á Vesturlandahatur. Á níunda áratug síðustu aldar voru nemendur sendir til að berjast gegn Rússum í Afganistan og Indverjum í Kasmír. Nú á dögum nota talibanar þá í skæruhernað gegn herliði NATO.

Talið er að einungis 2% skólabarna í Pakistan gangi í madrassa skóla. Deilt er um hvort auknar sjálfmorðsárásir trúarofstækismanna í landinu séu afleiðing fjölgunar á madrassa skólum á undanförnum áratugum.

Á sínum tíma gagnrýndi Benazir Bhutto skólana harðlega fyrir að heilaþvo börn. „Vegna þess að stjórnvöld kjósa að sóa 1400% meira fé í herinn en skólakerfið, eiga margir fátækir foreldrar ekki annarra kosta völ," sagði Benazir í æviminningum sínum. Nú þegar Þjóðarflokkur hennar er kominn til valda má því búast við hertum aðgerðum.

„Án okkar fengu þessir krakkar enga menntun," segir Rahmani, óhræddur um að yfirvöld svipti hann starfinu. „Allah stendur með okkur."

(Birtist í 24 stundum vorið 2008)


Kóraninn stúderaður Nemendur við daglegan kóranlestur í madrassa, trúarskóla, í grennd flóttamannabúðir Afgana í Pakistan.

Salim Rahmani Gestgjafi 24 stunda í mosku skólans.

Ungur talibani Nemendur tilbiðja Allah fimm sinnum á sólarhring.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Guðmundsdóttir

Voðalega finnast mér þetta vera ellilegir nemendur- kannski eru myndirnar ekki teknar í skólanum?

Sanngirni er aldrei til í svona málum- venjulegt fólk blædir alltaf fyrir ribbaldana. Samt finnst mér merkilegt ad heimamanneskja gagnrýni svona skóla fyrir heilaþvott. Kannski eitthvað til í því? Magnað ef hægt er að lækna haöfuðverk með hjálp Allah og kóransins. Skil núna af hverju ég er ekki læknuð- alltaf að leita á vitlausum stöðum!

Birna Guðmundsdóttir, 22.9.2008 kl. 10:29

2 Smámynd: Egill Bjarnason

Jú, myndirnar eru úr umræddum skóla. Gamlir - tja - svona á framhaldsskólaaldri hugsa ég ... 

Egill Bjarnason, 22.9.2008 kl. 10:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband