14.6.2009 | 22:37
Tvö brjóst, tíu myndavélar
Um helgina náðu núdistar að valda mér vonbrigðum. Þeir auglýstu World Naked Bike Ride í New York. Sá meinti heimsviðburður reyndist vera smá samkoma þar sem flestir mættu með myndavél en ekkert reiðhjól. Nektarparturinn stóð heldur ekki undir nafni.
Þegar ég var við það yfirgefa pleisið, sveif á mig gamlingi og bauðst til að kaupa nokkrar af mínum myndum á fimmtíu dollara. Díll.
Afhverju? Ég fattaði það ekki fyrr en sá gamli kom aftur stuttu síðar og sagði frekar laumulega: Heyrðu, geturðu tekið myndir af strákunum fyrir aftan okkur? Þeir eru svo sætir ...
Ég var semsé að skjóta svæsniefni fyrir áttræðan perra. Frábært.
Fyrirsæta dagsins Hún hefur sennilega aldrei fengið aðra eins athygli, þessi eina berbrjósta í hjólreiðatúrnum.
Stór ... augu Hún dróst langt afturúr hópnum og vakti því talsverða undrun vegfarenda.
Athugasemdir
Hún er með brjóstin á bakinu.
Amerískur öfuguggi ...
Þorsteinn Briem, 15.6.2009 kl. 12:10
Brjánn Guðjónsson, 15.6.2009 kl. 16:07
Er þetta ekki heilmikil nekt fyrir hina skinhelgu Kana!
Elín Gunnlaugsdóttir (IP-tala skráð) 15.6.2009 kl. 18:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.