22.1.2010 | 10:01
Kúvending
Á sandkassaárum mínum óskaði ég þess að Ísland væri ríkara af hvítum sandi.
Ísland í Sahara og allt það.
Í Súdan skipti ég um skoðun - með sand í augunum.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.1.2010 | 09:59
Kominn til Khartúm
Kominn til borgarinnar þar sem blá og hvíta Níl mætast.
Skilin sjást reyndar best frá Google Earth.
En þá hittir maður ekki veiðimennina.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.1.2010 | 06:46
Áfram Mósambík!
Þegar þetta er skrifað eiga Egyptar við lið Mósambíkur í African Cup. Allir á hótelinu hér í Súdan eru límdir við sjónvarpið - nema ég auðvitað.
Egyptaland hefur yfirhöndina. Í hvert sinn sem þeir skora fagna flestir áhorfendurnir á hótelinu. Gleði þeirra virðist gjörsamlega tilgerðarlaus.
Á meðan eru tveir stuðningsmenn Mósambíkur. Þeir hafa ekki sést í seinni hálfleik - eða síðan þeir stormuðu út algjörlega niðurbrotnir.
Af hverju get ég ekki haldið athyglinni yfir fótboltaleik lengur en 90 sekúndur!? Ég hef reynt og reynt og reynt.
Ég vil geta notað sunnudagana í að horfa á menn á Englandi sigra íþróttaleik.
Ég vil geta öskrað á sjónvarpsskjá í 90 mínútur án þess að þykja klikkaður.
Ég vil geta grýtt ljósritunarvél og notið fullkomins skilnings fólks. Fólks sem þekkir reiðina við að sjá sitt lið tapa.
Og hvaða afsökun hef ég fyrir að grýta ljósritunarvélinni í Arsenal-mann?!
Ferðalög | Breytt 22.1.2010 kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.1.2010 | 10:27
Glósur frá ferðamanni: Egyptaland
Plús: Pýramídar,Níl, Rauðahafið og Sahara - Egyptland er ríkt af einstökum áfangastöðum. Veðursælt allan ársins hring. Kaíró er heimsborg sem aldrei sefur. Vatnspípumenning. Frjálslynt miðað við heimshluta. Þægilegar og skilvirkar samgöngur. Allur skalinn af hótelum, frá bakpokavist uppí flottræfils-fimmstjörnur, og máltíðum, frá 50 króna fuul uppí 5000 króna steik. Almennt verðlag er lágt.
Mínus: Tólfmilljón túristar. Landið er eitt túristagettó með höstlerum á hverju götuhorni. Ferðamenn kynnast Faróa-Egyptalandi betur en nútíma Egyptalandi. Fáránlegur aðgangseyrir að söfnum og merkisstöðum. Byggingar og sýningagripir frá Forn-Egyptum eru eftirlíkingar - þó að öðru sé gjarnan haldið fram. Nauðsynlegt að prútta allt, meira að segja tebollann.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.1.2010 | 17:35
Hvernig er andskotinn á arabísku?
Var að fatta eitt helvíti merkilegt. Blótsyrði eru ekki til í arabísku.
Þegar hlutir fara úrskeiðis er sagt eitthvað í líkingu við Guð minn góður.
Í dag sprakk dekk á rútunni minni. Djöfullinn hugsaði ég en bílstjórinn tautaði O, Allah.
Kannski hef ég rangt fyrir mér. Kannski bölva arabískumælandi miklu oftar en ég geri mér grein fyrir.
En það er allavega ekki til neinn almennur frasi einsog helvítis fokking fokk.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.1.2010 | 12:21
Skopleg skriffinnska
Skriffinnskan í Súdan slær öllu við. Gott dæmi er ferð mín á skrifstofu yfirvalda stuttu eftir komu í Vadi Halfa til þess að skrásetja" mig. (Í leiðinni vildu þeir upplýsingar um fjölskylduhagi, trúarbrögð og nafn móður.)
Skráningin tók eilífð vegna þess að ég þurfti að fara milli sjö skrifstofna í byggingunni. Einn maður hefði getið afgreitt málið á mínútum.
Eini munurinn á embættismönnunum var liturinn í kúlupennunum þeirra. Grínlaust gerði einn skrifstofumaðurinn ekkert annað en að krota tvö strik - en það með rauðan penna meðan aðrir héldu bláum.
Lánaðu mér penna," sagði einn skrifstofumaðurinn sem kallaður var Kapteinninn. Ég greip penna merktan Framsóknarflokknum úr töskunni.
Þetta er svartur penni!" sagði Kapteininn og hætti að skrifa í miðju orði. Aðeins forsetinn notar svartan penna."
Þar höfum við það. Omar al-Bashir er eini embættismaður Súdanska lýðveldisins (sic!) sem notar svartan penna.
Ferðalög | Breytt 22.1.2010 kl. 15:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.1.2010 | 18:46
Súdan og svínaflensa
Myndin að ofan er tekin á leið til Súdan. Eina leiðin frá Egyptalandi er upp Níl, með farþegaskipi sem fer einu sinni í viku og tekur góðan sólarhring.
Ég var dálítill lasarus, eins og pabbi myndi segja, þegar ég steig um borð; með kvef og í þokkabót ósofinn vegna hótelstarfsmanna sem töldu bráðnauðsynlegt að rífa niður vegg með sleggju um miðja nótt.
Og ekki batnaði kvefið við að sofa út á þilfari.
Þegar ég vaknaði, sagði kapteinn um borð: Fylltu út þetta eyðublað og skilaðu inn á skrifstofu til þess að fá stimpil í vegabréfið. En fyrst verður þú að láta mæla þig."
Auðvitað. Súdan vill ekki menn með svínaflensu. Þeir álíta að svínaflensa sé smitsjúkdómur frá hvíta manninum - rétt eins og eyðni (sic). Þess vegna þurfti engin arabi eða Afríkumaður að hitta mælingamanninn.
Sem betur fer var hjartslátturinn ekki mældur meðan ég beið eftir niðurstöðum úr eyrnamælinum.
Góður!" sagði mælingamaðurinn og ég andaði léttar.
Hann skrifaði útkomuna á blað til framvísunar á annarri skrifstofu. Þar stóð:
34°
Mjög góður!" undirstrikaði maðurinn þegar ég labbaði út. Góður? Ég er kraftaverk ef eitthvað er að marka þennan mæli.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 18:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.1.2010 | 08:34
Treystið trúarofstækismönnum!
Í túristagettóinu Egyptalandi þykir sjálfsagt að snuða ferðamenn. Maður þarf jafnvel að prútta tebollann sem er spurning um stolt fremur en peninga. Maður vill ekki að loddarinn hafi vinninginn.
Þegar við Maddí vorum í Abu Simbel, sagðist ég engum treystalengur - nema trúarofstækismönnum. Þeir væru of Guðhræddir til að standa í svindli.
Daginn eftir fórum við á lókal veitingastað þar sem vertinnleit út eins og leiðtogi Múslímska bræðralagsins. Tuttugu pund á kjaft, sagði hann.
Ég efaðist ekki eitt augnablik og var hinn ánægðasti að rekast á þennan vingjarnlega föndamentalísta sem las Kóranrit milli þess hann skenkti hrísgrjón og kjúkling.
Við fórum aftur á veitingastaðinn degi síðar en þá voru bara unglingar að vinna, klæddir gallabuxum og stuttermabolum (heiðingjar!)
Þeir rukkuðu helmingi minna.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 08:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
8.1.2010 | 07:39
Krítík frá Kaíró
Kaíró er eina höfuðborgin í Miðausturlöndum þar sem jafnvel skóbúðir eru opnar vel yfir miðnætti. Verst er umferðaröngþveitið og mengunin. Að komast milli borgarhluta með strætó getur tekið vel á annan klukkutíma.
Jerúsalem er Guðdómleg, í orðsins fyllstu merkingu. Þar kallast á nútíð og fortíð, íslam og gyðingdómur, stríð og friður.
Þrátt fyrir regluleg sprengjuregn undanfarna áratugi hefur Beirút ekki tapað sínum sjarma í frjálslyndi og fjölmenningu. Matarmenningin og næturlífið skákar næstum Jerúsalem við.
Í Amman eru góðar falafel-samlokur. Meira verður ekki sagt.
Gamli hlutinn af Sana hefur klárlega tekið minnstum breytingum. Fallegra borgarlandslag er vanfundið, sérstaklega horft frá fyrstu skýjagljúfrum heims".
Meðal ferðmann er í tísku að tala illa um Theran. Borgin er áægt útaf fyrir sig, nútímaleg og þægileg. Gestrisni borgarbúa bætirum alla gallana og gott betur.
Múhameð spámaður neitaði að stíga fæti inn fyrir Damaskus vegna þess að hann vildi einungis heimsækja himnaríki einu sinni. Líklega ein af ranghugmyndum þessa manns - líklega, því hvað veit ég um útlit himnaríkis.
Ég veit heldur ekki meir um höfuðborgir heimshlutans.
Jemen Gamli bærinn í Sanaa.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
7.1.2010 | 07:19
Glósur frá ferðamanni: Jemen
Plús: Þjóðlegt, gestrisið og fast í fortíð. Land sem kemur reyndustu ferðalöngum stöðugt á óvart. Gestur er gjöf frá Guði í augum heimanna. Einstakir fjallagarðar norðan höfuðborgarinnar bjóða upp á ógleymanlegar gönguferðir. Litlu fjallaþorpin eru tilkomumikilvirki. Borgarlandslag gömlu Sanaa er töff. Mun ódýrara en önnur Arabíuríki og heimamenn reyna aldrei að svindla á ferðamönnum.
Mínus: Kúgun kvenna. Takmarkað ferðafrelsi. Mannræningjar og byssuvargar. Léleg enskukunnátta. Óþolandi fyrirferðamikil stjórnsýsla. Engin bakpokakúltúr. Fíkn karlamanna í qat, örvandi jurt, litar allt daglegt líf. Umferðin er ekki fyrir lífhrædda.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 08:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)